Stórsöngkona fundin

Ath: Myndin hér að neðan er fengin að láni hjá http://www.steamersjazz.org/gallery/annie/index.htm

Annie Sellick, á hljómleikum í des.
		2005Við hjónin skruppum til Flórída í mars 2006, nánar tiltekið til Kissimmee, sem er "Kópavogur" Orlando. Áður en við fórum kannaði ég á netinu hvað væri bitastætt í jazzheiminum á svæðinu. Það virtust vera tveir staðir í Flórída, sem byggðu á jazzi. Annar þeirra var ekki innan seilingar, ef svo má segja, en hinn var á austurströndinni, rétt suður af Kanaveralhöfða (Cape Canaveral) í strandbæ, sem heitir Kakóströnd (Cocoa Beach). Þar rekur kona, austurrískur innflytjandi, þennan líka metnaðarfulla jazz-veitingastað, "Heidi's Jazz Club. Klúbburinn býður upp á góðan jazz alla eða flesta daga og eru það jazzleikarar af svæðinu, sem bera hitann og þungann af spilamennskunni, en þó koma annað slagið gestir lengra að komnir.

Þennan tíma sem við ætluðum að vera í Flórída vildi svo til að ung söngkona, Annie Sellick, átti að syngja þarna tvö kvöld. Við nánari athugun kom í ljós að hún var með eigin heimasíðu, www.anniesellick.com, og einnig fann ég viðtal við hana á http://www.dvlpment.com/annie/interviews/index.htm (ath: Internet Explorer og Microsoft bundnir vefur)

Báðir þessir vefir auk annarra sem ég fann, sannfærðu mig um að þarna væri viðburður á ferðinni, sem ég mætti ekki missa af. Og miðar voru pantaðir, Google Earth notað til að finna staðinn á korti, en samt reyndist ekki auðhlaupið að því að komast á satðinn.

Vegna þess hve erifitt var að finna staðinn, komum við nokkuð of seint á tónleikana. Samt náðum við u.þ.b. tveggja tíma prógrammi. Og hvílíkt prógramm.

Annie var ekki með sína hljómsveit. Hún hafði sent húsbandinu prógrammið og nótur og þau höfðu æft í aðeins um klukkutíma áður en tónleikarnir hófust. Það kom ekki að sök, því að það var eins og þau hefðu spilað saman vikum saman, "gömlu mennirnir" og hún. Sá elsti í hljómsveitinni, bassaleikarinn Johnny Powers, þurfti að staulast upp og niður af sviðinu, en bassinn lék í höndum hans. Ron Texeira fór fimum fingrum um lyklaborð flygilsins og Stan Soloko barði húðir og diska af stakri snilld.

Það var í einu orði sagt stórkostlegt að hlusta á Annie. Túlkun hennar var slík, að það var eins og hvert einasta lag hefði verið samið sérstaklega fyrir hana. Þau brot sem ég hafði heyrt á netinu af lögum hennar, voru frábær, en þó var flutningur hennar á sviði slíkur að lögin komust í æðra veldi. Hún ætti að gefa út DVD vídeó fremur en geisladiska!

Útgáfa

Annie hefur gefið út þrjá geisladiska og auk þess verið með á fleirum. Diskarnir hennar eru:

Annie hefur einnig sungið með öðrum á disk:

Æviágrip

Annie var tvítug, þegar hún kynntist jazzinum. Hún ætlaði að verða hjúkrunarfræðingur, en eitt sinn er hún var að hlusta á jazz með vinum sínum á jazzklúbb nokkrum, þá var hún mönuð upp í að fara á svið og syngja. Hún fékk þvílíkar viðtökur að hún ákvað þá strax að helga sig jazzinum.

Annie er fædd í Miðvesturríkjunum, en fluttist ársgömul til Nashville, Tennessee. Foreldrar hennar höfðu bæði tónlistaráhuga. Móðir hennar hlustaði mikið á söngleiki, en faðir hennar hafði mestan áhuga á bluegrass tónlist. Annie telur að bluegrass tónlistin hafi lagt grunninn að því að hún síðar heillaðist af jzzinum. Þótt hún hefði alist upp í höfuðborg "country" tónlistar, þá heillaði sú tónlist hana engan veginn.

Hóf nám í Middle Tennessee State University í Murfreesboro, Tennesseee, og ætlaði að verða hjúkrunarkona. Félagar hennar stunduðu klúbb sem hét Boro Bar & Grill, þar sem húsbandið, Roland Gresham, sextugur blökkumaður og félagar léku jazz. Hún heillaðist strax af jazzinum, og þar kom að að félagar hennar eggjuðu hana til þess að fara upp á svið og syngja með húsbandinu. Hún söng "Fever". Það var nóg. Áheyrendur risu úr sætum og klöppuðu. Hún fann sig þegar í jazzsöngnum. Þetta var hennar köllun.

Anni hafði ekki hugmynd um hvaða "stíl" hún var að syngja. Hún var svo blaut á bak við eyrun hvað jazzinn varðar, að hún hélt að Billie Holiday væri karlkyns!

Síðan hefur hún þrisvar í röð verið kosin jazztónlistarmaður ársins í Nashville, og sungið með ýmsum af bestu jazztónlistarmönnum Bandaríkjanna og víðar. Hún er eftirsótt ekki bara í sínum heimabæ, heldur einnig í stóru jazzborgunum, New York, Los Angeles, Montreal (Kanada), og nú einnig í Japan. Einnig hefur hún heimsótt Evrópu og hyggur aftur á heimsókn þangað síðsumars 2007.

Umfjallanir

Umfjallanir um Annie Sellick eru undantekningarlaust mjög góðar. Það sem heillar hlustendur er ekki bara rödding og túlkunin varðandi sönginn, heldur hversu mikla áherslu hún leggur á að segja sögur í söngnum—og einnig milli laga, þegar hún er á sviði. Túlkunin er djupstæð, en húmorinn er heldur aldrei langt undan. Það er alltaf augljóst að hún hefur gaman af því sem hún er að gera.

Hér er nýleg umfjöllun (bætt við 13. mars. 2007):

Fleiri myndir frá konsertum:

Annie Sellick in Concert in Churchill Grounds, Atlanta 29. júlí (2005? Hún var þar síðast 11-12 mars 2006, eða rétt áður en ég heyrði í henni á Heidi's Jazz Club).

Frekari upplýsingar:

Bloggsíða tileinkuð Annie Sellick

Indie Ink

Upprunalega skrifað: 13. mars. 2007.

Síðast uppfært: 20. jún. 2009.


Til baka í yfirlit um tónlist.