Velkomin á vefsetur Böðvars

Hvað er hér að finna?

Eins og sjá má hér til vinstri (eða efst í símanum) í yfirlitsglugganum er mér ýmislegt hugleikið. Smellið á tengla þar til að sjá hvað þar er að finna.

Biblíuskýringar

Ég hef margvísleg áhugamál, en mun hér leggja sérstaka áherslu á Biblíuskýringar Björgvins Jörgenssonar kennara, föður míns (1915-1999), en hann er samkvæmt minni bestu vitund fyrstur Íslendinga til að semja skýringar við mörg rit Biblíunnar (skýringar við örfá rit GT vantar). Hér er að finna eitthvað af þeim. Sums staðar hef ég sett inn athugasemdir en sums staðar breytt þar sem augljóslega skorti skilning á efninu.

Eigið efni og þýðingar

Einnig verður hér að finna efni frá sjálfum mér og fleirum um Biblíuskýringar og skyld efni, t.d. þýdda grein eftir Hugo Odeberg Nýja testamentisfræðing, Mannssonurinn og leyndardómurinn, sem er einkar áhugavert efni að mínu mati, ásamt fleiru efni.

Tónlist

Eitthvað er hér að finna um tónlist og tónlistartengt efni og er krækja í það hér í hliðarrammanum. Í bili er hér að finna efni um "Messías" eftir Hendel, en einnig er hér eitthvað að finna um jazz.

Blogg og samfélagsmiðlar

Og svo blogga ég á klingenberg. Hvers vegna Klingenberg? "bodvar" var ekki á lausu. Því þá ekki að nota ættföðurinn? Ég er 7. maður í beinan karllegg frá Hans Klingenberg á Krossi og víðar en síðast á Elínarhöfða á Akranesi.

Ég blogga líka um önnur sérmálefni á öðrum síðum, svo sem sjá má í hliðarramma.

Þá er ég einnig á Twitter og Facebook.

Böðvar Björgvinsson

Nýjast á vefsetrinu

Leyndardómur upprisunnar
eftir Hugo Odeberg.
Farið inn á yfirlit yfir hugleiðingar til að skoða.

Meðmæli mín

Ef þú ert ekki háður Windows eða Mac forritum mæli ég eindregið með Linux. Það er verulega traust kerfi og einkar hentugt sem serverar/prent- eða vefþjónar. Hér eru nokkrar útgáfur sem ég hef notað gegnum tíðina, þó ég hafi neyðst til að skipta yfir í Windows vegna þeirra forrita sem ég þarf að nota:
S.u.S.E. Linux
S.u.S.E. Linux frá 6.1 til 9.2


openSUSE.org
OpenSuSE frá 9.3 til 10.3


Frá og með 23. nóvember 2007 nota ég
Debian Powered

Debian 4.0 Etch
og hef uppfært í 5.0 Lenny.
Setti nýlega upp Debian á gamla tölvu sem mig langaði að prófa sem vefþjón. Það var lítið mál að setja það upp.


Áður var ég búinn að prófa hið mjög svo skemmtilega
Sabayon Linux
Sabayon Linux,
en sú útgáfa réði ekki við flókna diskskiptingu sem ég nota.