27 júlí
[Jesús] fór nú um þorpin þar um kring og kenndi.
-Mk. 6:6

Mörgum okkar finnst við ráðvillt. Okkur finnst við ekki hafa afrekað mikið. Við höfum ekki slegið í gegn. Heldur ekki Jesús. Hann var minni háttar prédikari af landsbyggðinni. Kaífas hitti meira en milljón manns á hátíðunum, þegar Gyðingar frá öllum heimshornum komu til að biðjast fyrir í Jerúsalem. Hann var hins vegar ekki neinn happapeningur heldur. Pílatus hafði vald til þess að setja hann af þegar honum svo líkaði. Pílatus var heldur ekki sérlega heppinn. Sesar sendi hann í útlegð. Og ekki var það heldur sérlega happafellt að vera Sesar. Júlíus Sesar féll fyrir hendi sonar síns. Neró var einnig drepinn eftir að hafa gert nokkrar allvel heppnaðar tilraunir til að uppræta kristna hópa.

Við skulum ekki öfunda mikilmenni, sem afreka mikið. Það eru yfirleitt bara sýndarafrek. Miklir menn skapa söguna, en aðeins að því leyti sem þeim er það leyft. Þeir eru undir stjórn aðstæðna sinna.

Enn sterkari þáttur í lífi okkar er fortíð okkar. Robespierre, hinn blóðþyrsti stjórnandi frönsku byltingarinnar, hafði verið yfirgefinn af föður sínum eftir að móðir hans dó. Hann þurfti að berjast fyrir því að fá einhverja menntun. Lúðvík 16. og drottning hans höfðu móðgað hann í æsku. Hann hafði verið kjörinn til þess að halda móttökuræðu, þegar þau komu í heimsókn til heimabæjar hans. Þau gáfu hvorki með orðum eða látbragði til kynna neina viðurkenningu, heldur óku burt. Þetta gerði hann að mannhatara. Hann skemmti sér við að drepa þúsundir saklausra manna. Hann naut þess að sjá blóðið renna við fallöxina.

Guð ákvarðaði okkur ekki til þess að vera drápsmenn. Að drepa er alltaf í andstöðu við náttúruna. Þess vegna gera morðingjar mikil mistök. Robespierre hegðaði sér líka óskynsamlega og dó sjálfur í fallöxinni. Hann hafði ekki afrekað neitt. Lýðveldið, sem hann stofnaði til, braut aðeins veginn fyrir keisara: Napóleon.

Leitið ekki að afrekum, sem eru afrek í augum heimsins. Þau auka aðeins á hégómann. Berið ykkar eigin byrðar og fortíðarinnar með undirgefni. Lærið af Jesú, sem var hógvær og af hjarta lítillátur og lét sér nægja að vera smiður að iðn, kennimaður, sem gekk á milli þorpa og kenndi án þess að vinna til kærleika fólksins, og var síðan krossfestur. Upprisan kom í kjölfarið.


Þessi grein er úr daglegum hugvekjum Sr. Richards Wurmbrand, "Reaching Towards the Heights"

Til baka í yfirlit.