Hér eru nokkrar hugleiðngar og greinar um ýmis málefni, einkum trúarlegs efnis, eftir ýmist mig sjálfan eða aðra mér miklu fremri.
INNGANGUR UM MARIE MONSEN (1878-1962)
Marie Monsen var kristniboði í Kína árin 1901-32. Hún skrifaði ekki mikið en fékkst þó til þess að senda frá sér örfáar bækur, sem höfðu mikil áhrif í Noregi og víðar. Nú er að finna eftir hana á ensku m. a. bókina
Kristniboðar eru yfirleitt sendir og kostaðir af kristniboðsfélögum í heimalandinu. Marie fékk hins vegar köllun um að fara á eigin vegum, án nokkurra peninga eða stuðnings að heiman. Hún taldi að hún væri kölluð til þess að boða trúna algerlaga af trú. Þegar hún hafði pantað sér skipsfar átti hún enga peninga, en fékk nákvæmlega fyrir ferðinni þegar hún var á leið til skipsins.
Vakningar voru miklar í Kína á þessum tíma og ekki síst hjá Marie Monsen. Kommúnistastjórnininni í Kína virtist ætla að takast að þurrka út kristindóminn í Kína, en það tókst aldrei alveg. Á síðustu áratugum 20. aldar spratt síðan fram gífurleg vakning í Kína, þegar ein kona, sem heyrt hafði orðið þegar hún var lítil og tekið við því, vaknaði aftur upp andlega og trúarlega og tók að vitna um trú sína. Um það má lesa í bókinni Himnamaðurinn. Það sæði sem Marie Monsen hafði plantað bar ríkulegan ávöxt og gerir enn.
Marie er þekkt í Kína sem „móðir heimakirknanna.“ Sjá meira um Marie Monsen á Wikipedia.
Þessi síða var síðast uppfærð: mánud. 15. sept. 2014 eftir flutning af bodvar.net á bodvar.is. Aðeins minniháttar lagfæringar.