Bæn meistara Eckhart von Hochheim

Ó, hátt upphafni rí­kdómur guðlegrar náttúru,

sýn mér vegu þí­na,

sem þú hefur í­ ví­sdómi þínum fyrirbúið

og opna mér hinn dýrasta fjársjóð,

sem þú hefur kallað mig til:

að skilja af skynsemi,

að eiga og njóta kærleika með englunum meira en öll sköpunin,

að taka arf með þí­num einkasyni, Drottni vorum Jesú Kristi,

að taka við þér samkvæmt þinni eilí­fu visku

og með þinni hjálp að halda mér frá öllu illu.

Því­ að þú hefur hafið mig upp yfir alla sköpunina

og sett á mig innsigli þinnar eilí­fu í­myndar

og gert sálu mí­na óskiljanlega allri sköpun þinni

og þú hefur engan gert þér lí­kan nema manninn í­ sálu sinni.

Kenn þú mér því­ að lifa þannig

að ég sé aldrei án þí­n,

og að þú verðir aldrei hindraður í­ kærleiksrí­ku, streymandi verki þí­nu í­ mér,

og að ég gefi mig heldur aldrei neinni girnd á vald,

né verði hugur minn upptekinn af neinu af sköpun þinni,

heldur aðeins af þér.

Drottinn, þú ert andi

sem ert óskiljanlegur allri sköpuninni.

Þú gerir sálina andlegrar veru, að hún í­ anda sí­num sé sett æðst allrar sköpunar,

svo að hún, þú eilí­fa viska, verði fullnægð eftir þí­num guðdómlega vilja

og verði af náð leyst frá öllum gagnslausum myndum sem hún hefur hleypt inn.

Því­ að þú hefur gert sálina áþreifanlega að þinni eign og og jafna þér.

Gæt hennar því­

að í­ henni megi ekkert búa nema þú einn.

Því­ að þú ert þrennur í­ persónum

og einnig að eðli til Guðlegrar náttúru,

það er: Faðir, Sonur, Heilagur andi

og eilí­flega blessaður almáttugur Guð.


Amen.

Þýðing: Böðvar Björgvinsson.

Meistari Eckhart (Meister Eckhart O.P.) var uppi frá u.þ.b. 1260 til u.þ.b. 1328.

Hann var mikill hugsuður og launhelgamaður eða mýstiker (mystic) og lagði mikla áherslu á fulla einingu við Guð með vísan einkum til Jóhannesarritanna (guðspjall og bréf).


Til baka í yfirlit.