Hamskeri nokkur fangaði glæsilegan fugl. Þegar hann lyfti hnífi sínum til að skera
fuglinn, bðast fuglinn fagri vægðar og sagði:
"Þyrmdu lífi mínu. Ég á litla unga. Í staðinn skal ég veita þér þrjú ráð, mjög einföld, en
einstaklega notadrjúg."
Hamskerinn undraðist mjög að fuglinn skyldi geta talað mannamál og lofaði honum frelsi, ef ráðin reyndust góð. Fuglinn gaf eftirfarandi ráð:
Hamskerinn sá þegar vísdóminn í þessum ráðum og sleppti fuglinum. Fuglinn flaug upp á næstu grein og byrjaði þegar að hæðast að honum.
"Fíflið þitt! Hvers vegna slepptir þú mér? Það er stór gimsteinn í kviði mínum. Hefðir þú skorið mig hefðir þú orðið ríkur það sem þú ættir ólifað."
Hamskerinn iðraðist þegar að hafa sleppt fuglinum og byrjaði að klifra upp í tréð til þess að ná honum. En þegar hann hafði náð upp á fyrstu greinina, var fuglinn þegar kominn upp á næstu fyrir ofan. Og þegar hann komst upp á þá grein var fuglinn kominn upp á þá þriðju. Að lokum missti hann fótanna, datt niður úr trénu og fótbrotnaði.
Sem hann lá þar emjandi af sársauka, flaug fuglinn nær og sagði:
"Þú tókst við ráðunum mínum þremur og barst lof á þau fyrir hversu viturleg þau væru. Hvers vegna gast þú ekki farið að þeim í að minnsta kosti fimm mínútur? Ég sagði þér að trúa aldrei neinu heimskulegu, sama hver segði það. Hvernig datt þér í hug að trúa því að lítill fugl gæti haft stóran gimstein í kviði sínum? Ég sagði þér að iðrast aldrei neins góðs, sem þú hefðir gert. Hvers vegna iðraðist þú þess að hafa gefið mér frelsi? Ég sagði þér að reyna aldrei að ná því sem ekki verður náð. Vissir þú ekki að þú getur ekki náð fugli með berum höndum?
Þið mennirnir funduð upp útvarpið og getið heyrt í einu landi ræðu sem flutt er í öðru landi, en þið hafið enn ekki fundið upp tæki sem gerir ykkur kleyft að heyra með eyrum ykkar það sem ykkar eigin munnur talar, eða að trúa í hjarta ykkar því sem hugur ykkar viðurkennir að sé rétt."
Þú viðurkennir að Biblían sé Guðs Orð. Vertu ekki aðeins heyrandi eða lesandi, heldur einnig gjörandi og framkvæmandi.
Þessi grein er úr daglegum hugvekjum Sr. Richards Wurmbrand, "Reaching Towards the Heights"
Til baka í yfirlit.