Ó, að þér í dag vilduð heyra raust hans. Herðið eigi hjörtu yðar.
Ungur maður sagði við móður sína: "Ég get ekki trúað Biblíunni. Það er svo margt í henni, sem ég á erfitt með að kyngja, hlutir, sem eru hreint óskiljanlegir."
Móðirin svaraði: "Þegar þú varst í stríðinu, skrifaðir þú mér eitt sinn: 'Þú skrifar um hluti sem eru mér óskiljanlegir. Ég er reyndar búinn að vera að heiman í þrjú ár. Ég myndi kannski skilja þá ef ég væri hjá þér.'"
Það, að hve miklu leyti Biblían er okkur óskiljanleg, fer eftir því hversu langt við erum að heiman frá okkar himneska heimili, sem er það sem Biblían talar um. Snúðu heim til þessa heimilis og þú munt öðlast skilning.
Gerðu það strax.
Gríski ógnar-einvaldurinn Arkhakus var á leið til veislu þegar maður nokkur rétti honum bréf, sem stóð á: "MJÖG ÁRÍÐANDI".
Hann svaraði: "Áríðandi hlutir mega bíða til morguns."
Skömmu síðar, þegar hann var orðinn drukkinn, stakk morðingi hann í hjartastað með hnífi. Blóðið rann niður á bréfið, sem hafði að geyma aðvörun um tilræðið.
Ill öfl leitast við að halda okkur sem lengst í burtu frá húsi okkar himneska föður til þess að halda huga okkar óskýrum og til þess að okkar bíði eilífur dauði.
Farðu eftir viðvöruninni. Snúðu heim.
Þessi grein er úr daglegum hugvekjum Sr. Richards Wurmbrand, "Reaching Towards the Heights"
Til baka í yfirlit.