BIBLÍUSKÝRINGAR
1. Mósebók
13. lestur A: 36. kapítuli:
Niðjatal Esaú og Edómíta
Formáli
36:1-8
[Björgvin hefur ekki þótt taka að eyða tíma í þennan kafla, sem að mestu leyti er ættartala og höfðingjatal, sem venjulega telst ekki beinlínis uppbyggilegt. Þar sem þó ekkert er lítilvægt í Biblíunni, þá leyfi ég mér að setja inn nokkrar athugasemdir frá egin brjósti.]
1M 36:1 | Þetta er ættartala Esaú, það er Edóms. |
1M 36:2 | Esaú hafði tekið sér konur af dætrum Kanaaníta: Ada, dóttur Hetítans Elons, og Oholíbama, dóttur Ana, sonar Hórítans Síbeons, |
1M 36:3 | og Basmat, dóttur Ísmaels, systur Nebajóts. |
1M 36:4 | Og Ada ól Esaú Elífas, Basmat ól Regúel |
1M 36:5 | og Oholíbama ól Jehús, Jaelam og Kóra. Þessir eru synir Esaú, sem honum fæddust í Kanaanlandi. |
Hér segir frá eiginkonum og sonum Esaú. Sjá nánar Töflu um konur og afkomendur hans. Esaú hunsar fyrirmæli Guðs um að Abraham og afkomendur hans skuli ekki taka sér konur af ætt Kana'aníta sjá 1. Mós. 24,3-4.
1M 36:6 | Esaú tók konur sínar, sonu sína og dætur og allar sálir í húsi sínu og hjörð sína og kvikfénað og allan þann fjárhlut, sem hann hafði aflað sér í Kanaanlandi, og fór í burtu frá Jakob bróður sínum til Seírlands. |
1M 36:7 | Því að eign þeirra var meiri en svo, að þeir gætu saman verið, og landið, er þeir bjuggu í sem útlendingar, bar þá ekki sökum hjarða þeirra. |
1M 36:8 | Esaú settist að á Seírfjöllum; en Esaú er Edóm. |
Hér má segja að hefjist lokakaflinn í sögu Esaú, frumburðarins, sem hafnaði frumburðarréttinum fyrir baunadisk. Í sögunni um hann sjást þess engin merki að hann hafi leitað ráðs Guðs, og hér tekur hann sig upp og segir skilið við þá arfleifð, sem Guð hafði lofað fyrir Abraham, sjá 1M 17:8 og Ísak. Þetta má segja að sé líka undirstrikað í upphafi næsta kafla, 37:1. Ástæðan er fjárhagslegs eðlis.
Seirfjöll eru suðaustur af Dauðahafinu. Landið var kallað Seir þangað til Esaú flytur sig þangað. Þá fær það fljótt á sig nafnið Edóm, sem var kenninafn Esaú.
Fornleifarannsóknir sýna að um 1850 f. Kr. urðu breytingar á lifnaðarháttum á þessu svæði, en þá yfirtaka hirðingar (nómadar) landið og helst það svo fram undir 1300 f. Kr. Þetta samsvarar vel þeirri lýsingu sem við höfum á Esaú, að hann var hjarðmaður.
1M 36:9 | Þetta er saga Esaú, ættföður Edómíta, á Seírfjöllum. |
1M 36:10 | Þetta eru nöfn Esaú sona: Elífas, sonur Ada, konu Esaú; Regúel, sonur Basmat, konu Esaú. |
1M 36:11 | Synir Elífas voru: Teman, Ómar, Sefó, Gaetam og Kenas. |
1M 36:12 | Timna var hjákona Elífas, sonar Esaú, og hún ól Elífas Amalek. Þetta eru synir Ada, konu Esaú. |
1M 36:13 | Þessir eru synir Regúels: Nahat, Sera, Samma og Missa. Þessir voru synir Basmat, konu Esaú. |
1M 36:14 | Og þessir voru synir Oholíbama, dóttur Ana, sonar Síbeons, konu Esaú, hún ól Esaú Jehús, Jaelam og Kóra. |
Hér segir frá sonarsonum Esaú. Sjá nánar Töflu um konur og afkomendur hans.
1M 36:15 | Þessir eru ætthöfðingjar meðal Esaú sona: Synir Elífas, frumgetins sonar Esaú: Höfðinginn Teman, höfðinginn Ómar, höfðinginn Sefó, höfðinginn Kenas, |
1M 36:16 | höfðinginn Kóra, höfðinginn Gaetam, höfðinginn Amalek. Þessir eru þeir höfðingjar, sem komnir eru frá Elífas í Edómlandi, þessir eru synir Ada. |
1M 36:17 | Þessir voru synir Regúels, sonar Esaú: Höfðinginn Nahat, höfðinginn Sera, höfðinginn Samma, höfðinginn Missa. Þessir eru þeir höfðingjar, sem komnir eru frá Regúel í Edómlandi, þessir eru synir Basmat, konu Esaú. |
1M 36:18 | Þessir eru synir Oholíbama, konu Esaú: Höfðinginn Jehús, höfðinginn Jaelam, höfðinginn Kóra. Þessir eru þeir höfðingjar, sem komnir eru frá Oholíbama, dóttur Ana, konu Esaú. |
1M 36:19 | Þessir eru synir Esaú og þessir eru höfðingjar þeirra, það er Edóm. |
Höfðingjarnir eru hér þeir sömu og synir og sonarsynir Esaús. Það stingur þó örlítið í augu að hér er Kóra nefndur með sonum Elífas, en fyrr er hann nefndur sem sonur Ohólíbama. Um kann að vera ónákvæmni, sem síðari tíma menn hafa ekki viljað leiðrétta, þar sem textinn var talinn of heilagur til þess.
Annað, sem hafa þarf í huga er að nöfn voru notuð misjafnlega eftir ættbæalkum og einnig voru orð eins og faðir, sonur og dóttir notuð frjálslegar en okkur er tamt. Þannig geta menn verið 'synir' eða 'dætur' afa síns eða jafnvel föður tengdaforeldra.
1M 36:20 | Þessir eru synir Hórítans Seírs, frumbyggjar landsins: Lótan, Sóbal, Síbeon, Ana, |
1M 36:21 | Díson, Eser og Dísan. Þessir eru höfðingjar Hórítanna, synir Seírs í Edómlandi. |
1M 36:22 | Synir Lótans voru Hórí og Hemam, og systir Lótans var Timna. |
1M 36:23 | Þessir eru synir Sóbals: Alvan, Manahat, Ebal, Sefó og Ónam. |
1M 36:24 | Þessir eru synir Síbeons: Aja og Ana, það er sá Ana, sem fann laugarnar á öræfunum, er hann gætti asna Síbeons föður síns. |
1M 36:25 | Þessi eru börn Ana: Díson og Oholíbama, dóttir Ana. |
1M 36:26 | Þessir eru synir Dísons: Hemdan, Esban, Jítran og Keran. |
1M 36:27 | Þessir eru synir Esers: Bílhan, Saavan og Akan. |
1M 36:28 | Þessir eru synir Dísans: Ús og Aran. |
Nú er lítillega gerð grein fyrir frumbyggjum í Seir, landinu sem Esaú flytur til og yfirgefur um leið arfleifð Abrahams og fyrirheitin, sem honum voru bundin.
Hér að ofan eru nefndir afkomendur Seirs, sem kallaður er frumbyggi. Í framhaldinu hér að neðan eru þeir af ofangreindum mönnum taldir upp, sem taldir eru höfðingjar.
1M 36:29 | Þessir eru höfðingjar Hórítanna: Höfðinginn Lótan, höfðinginn Sóbal, höfðinginn Síbeon, höfðinginn Ana, |
1M 36:30 | höfðinginn Díson, höfðinginn Eser, höfðinginn Dísan. Þessir eru höfðingjar Hórítanna eftir höfðingjum þeirra í Seírlandi. |
Nú víkur sögunni stuttlega til konunga, sem ríktu í Edóm "áður en konungar ríktu yfir Ísraelsmönnum."
1M 36:31 | Þessir eru þeir konungar, sem ríktu í Edómlandi, áður en konungar ríktu yfir Ísraelsmönnum: |
1M 36:32 | Bela, sonur Beórs, var konungur í Edóm, og hét borg hans Dínhaba. |
1M 36:33 | Og er Bela dó, tók Jóbab, sonur Sera frá Bosra, ríki eftir hann. |
1M 36:34 | Og er Jóbab dó, tók Húsam frá Temanítalandi ríki eftir hann. |
1M 36:35 | Og er Húsam dó, tók Hadad, sonur Bedads, ríki eftir hann. Hann vann sigur á Midíanítum á Móabsvöllum, og borg hans hét Avít. |
1M 36:36 | Og er Hadad dó, tók Samla frá Masreka ríki eftir hann. |
1M 36:37 | Og er Samla dó, tók Sál frá Rehóbót hjá Efrat ríki eftir hann. |
1M 36:38 | Og er Sál dó, tók Baal Hanan, sonur Akbórs, ríki eftir hann. |
1M 36:39 | Og er Baal Hanan sonur Akbórs dó, tók Hadar ríki eftir hann, og hét borg hans Pagú, en kona hans Mehetabeel, dóttir Matredar, dóttur Me-Sahabs. |
Loks er getið helstu höfðingja, sem frá Esaú eru komnir:
1M 36:40 | Þessi eru nöfn höfðingja þeirra, er frá Esaú eru komnir,
eftir ættkvíslum þeirra, eftir bústöðum þeirra, eftir nöfnum þeirra: Höfðinginn Timna, höfðinginn Alva, höfðinginn Jetet, |
1M 36:41 | höfðinginn Oholíbama, höfðinginn Ela, höfðinginn Pínon, |
1M 36:42 | höfðinginn Kenas, höfðinginn Teman, höfðinginn Mibsar, |
1M 36:43 | höfðinginn Magdíel, höfðinginn Íram. Þessir eru höfðingjar Edómíta, eftir bústöðum þeirra í landi því, sem þeir höfðu numið. Þessi Esaú er ættfaðir Edómíta. |