Velkomin á heimasíðuBöðvars BjörgvinssonarÉg hef margvísleg áhugamál, en mun hér leggja sérstaka áherslu á Biblíuskýringar Björgvins Jörgenssonar kennara, föður míns (1915-1999), en hann er samkvæmt minni bestu vitund fyrstur Íslendinga tilað semja skýringar við nánast öll rit Biblíunnar (skýringar við örfá rit GT vantar). Ég reikna með að það taki nokkur ár að koma upp öllum þessum skýringum. Einnig verður hér að finna efni frá sjálfum mér og fleirum um
Biblíuskýringar og skyld efni, sbr. þýdda grein Hugo Odebergs hér í
vinstri spaltanum, Hér er einnig að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um Linux stýrikerfið. Í apríl 1999 frétti ég af ókeypis Linux námskeiði fyrir byrjendur. Námskeiðið, sem var á www.basiclinux.net, sem nú hefur verið lokað var sett upp sem 16 vikna nám, einn lestur á viku, en þó var allt í lagi að hafa sína hentisemi. Ég byrjaði í júní 1999. Það gerði lítið til þó að ég lenti í erfiðleikum með harða diska, o.fl. sem var að bila, því að hver hafði sinn hraða í raun. Einnig komu til póstlistar og vikulegir fundir á spjallrásum, þar sem vandamál og reynsla var rædd. Námskeiðsstjóri var Henry White. Námskeiðið reyndist mér frábærlega og gat ég mælt með því við alla, sem geta lesið og skrifað ensku og vilja kynna sér alvöru stýrkerfi -- stýrkerfi framtíðarinnar! Þessi vefur hefur því miður legið niðri síðan 2006, en enn einhvers staðar hef ég séð kópíu af efnissíðunum á netinu. Haustið 2003 var stofnað fyrsta "Linux User Group" félag á Íslandi. Það heitir Reykjavík GNU Linux User Group, skammnefnt RGLUG. Haldnir hafa verið nokkrir fundir í gamla Gaggó Aust, sem Iðnskólinn hefur undir hluta af sinni starfsemi. RGLUG er með vefsetur http://www.rglug.org Ég vinn að útgáfumálum hjá Air Atlanta Icelandic (Flugfélaginu Atlanta ehf). Árið 1996 kynntist ég þar SGML, sem er útbreiddur staðall um efnisskipan gagna (hvernig brjóta má niður efni skjals í skipulegar eindir, sem hægt er að endurnýta eða endurskipa á ný eða nota til þess að setja upp samræmt útlit) í flugiðnaði og flugrekstri. Upp úr því þróaðist XML, sem má segja að hafi tekið við af SGML. Einnig var HTML þróað upp úr SGML til þess að setja efni fram á einfaldan hátt á vefsíðum. Í HTML er áherslan þó lögð beint á útlitið, líkt og í einfaldari ritvinnsluforritum, fremur en á innihald. Við útgáfumál eru notuð ýmis forrit, en vorið 2002 kynntist ég FrameMaker 7.0 frá Adobe. Þetta er einn ljúfasti ritill fyrir skipaða ritun (Structured Editing), sem til er á skikkanlegu verði. Hann vinnur ekki beint í XML/SGML, heldur í eigin EDD kerfi/skipan, sem auðvelt er að færa/vista yfir í XML. FrameMaker hentar einkar vel til útgáfu á handbókum frá um 100 blaðsíðum og upp í þúsundir síðna og einnig í efni sem stöðugt þarf að endurnýja og uppfæra. Þeir sem vilja fræðast meira um FrameMaker geta skoðað sig um á FrameUsers.com, sem kalla má heimasíðu FrameMaker notenda. Það eru að vísu fleiri vefir til en þessi er sá allra vinsælasti og vefpósthópurinn sem þar er vistaður er gríðarlega stór og öflugur. Þeir sem vilja nánari upplýsingar um eitthvað af þessu mega senda mér rafbréf. Eitthvað er hér að finna um tónlist og tónlistartengt efni og er krækja í það hér í hliðarrammanum. Í bili er hér að finna efni um "Messías" eftir Hendel, en einnig er hér eitthvað að finna um jazz. Og svo blogga ég á klingenberg. Hvers vegna Klingenberg? "bodvar" var ekki á lausu. Því þá ekki að nota ættföðurinn? Ég er 7. maður í beinan karllegg frá Hans Klingenberg á Krossi og víðar en síðast á Elínarhöfða á Akranesi. Ég blogga líka um önnur sérmálefni á öðrum síðum, svo sem sjá má í hliðarramma. Með þessari heimsókn heimsóknir á þessa síðu orðnar
|
|
||||||||
|
|
|||||||||
This Is the Bodvar Bjorgvinsson Home PageClick here for English version. Please note that most of the Icelandic version is very different in content from the English version.
| |||||||||